Já ég held það sé sagt með renntu að hún móðir mín hafi fengið hrós vikunnar eða aldarinnar kannski fyrir hana hjá Jens EInarssyni á Seisei.is ...
"Skrapp í gærkvöldi á Páskamót Sleipnis í Ölfushöllinni. Notalegt sveitamót. Sá þar góðan reiðmann. Rósu Valdimarsdóttur frá Álfhólum á hestinum Íkoni frá Hákoti: Stillt taumhendi, mjúkur háls, mjúkur hrynjandi í töltinu. Góður taktur. Fyrir minn smekk var hún besti keppandinn í úrslitum. Hún reið við stangir og krossmúl. En enginn beislisbúnaður er harðari en höndin sem heldur í tauminn.
Rósa hafnaði í þriðja sæti. Dómararnir voru karlar. Strákar verða alltaf strákar. Þeir dýrka fótaburð og hraða, jafnvel þótt knapinn verði að beina hestinum út að grindverkinu til að hægja hann niður. Sennilega yrðu hraðari framfarir í reiðmennsku á Íslandi ef aðeins konur mættu taka hestadómarapróf"
Já ég held að ég ætli að taka þessu líka til hrósi til mín sem frábærs reiðkennara!! Já mar er búin að vera taka í kelluna.. hún hefur nú alltaf haft mikinn reiðtakt í sér... en hún er búin að vera mjög dugleg að tileinka sér nýju straumana í reiðmennsku og er vel up to date eins og sagt er. En þetta er náttlega búið að taka svita, öskur og riflildi milli móður og dóttur!!! hahaha
Mér persónulega finnst mér Jens hafa farið aðeins of
geyst í gagnrýnni sinni á knöpum, reiðmennsku og hestum undanfarið.
Taumhald og taumsamband á greinilega
hug hans allann þessa dagana en mér finnst eins og hann skoði ekki alveg
heildarmyndina, einnig finnst mér hann mismuna knöpum töluvert.
Tek dæmi: Hann drullaði þvílíkt yfir Viðar Ingólfs eftir gæðingafimi í MDVÍS um daginn. Þar reið hann Spaða frá Hafrafellstungu. Ég varð þess ánægju njótandi að ríða honum í hestaferð síðastliðið sumar og er það besti hestur sem ég hef nokkurn tíman farið á bak Vááááááaaa Þvílíkur Gæðingur. En Spaði er erfiður hestur hann á erfitt með að ganga á hægu, hann er stór og mikill, stórstígur og kannski ekki nógu skrokk mjúkur en eitt má hann eiga að vera alveg brjálaður úr vilja. Jú þetta var svona skíta redding fyrir horn hjá Viðari og ekkert frábær sýning hjá honum og jú keðjan kannski aðeins of hert, en það var hún hjá fleirrum.
En ég verð að segja að Jens mætti og ætti þá að horfa
gagnrýnum augum líka á aðra keppendur eins og t.d.
Sigga Sig sem var á Suðra frá Holtsmúla í fjórganginum og held ég líka í fiminni. Mér fannst reiðmennskan þar eiginlega
frekar slæm hjá annars frábærum knapa. Hesturinn virkaði eins og hann væri yfirspenntur, alltof hár og alltaf að streða í beislinu á öllum gangtegundum. Alls ekki gegnum mjúkur og gegnum flæði ekkert. Siggi náði engan vegin að höndla brokkið í honum alltaf á eftir hreyfingunni og hjó mikið í hnakkinn og hesturinn kvekktist alltaf við það og brást þannig við að fara í beislið og ofreisast.
En það er eins og Jens sé orðin eitthver
reiðmennsku lögga Íslands í dag. Ég tel það reyndar ákaflega gott að það sé eitthver sem tjáir sig um það á opinberum vettvangi og bendir á hvað er
gott og hvað mætti bettur fara. Gott að koma umræðu sem þessari af stað og löngu tímabært. En það eina sem ég velti því fyrir mér er hvort hann hafi
nógu mikið vit á hvað hann er að
tala um? .....Hversu mikla þekkingu hefur hann? Er hann nógu mikið inní reiðmennsku sem telst góð í dag? Hvaðan kemur hans þekking? Er hann með tilfinningu fyrir hvernig hestarnir eru í dag og hvað og hvernig knaparnir "eiga" að þjálfa í dag? Hefur hann grunþekkingu á hvernig maður fær hestinn taumléttan og þjálan? Safnaðan, gegnum mjúkan og við taum... upp í herðum, sáttan með langan háls... .. Ég meina það er ekki eins og hann sé Eyjólfur Ísólfs.. sem er búin að stútedera reiðmennsku í hundrað ár??
Eitt sem pirrar mig svakalega er þegar hann talar um
hvíldarlaust taumhald... Hvað þýðir það eiginlega.... Eins og þegar hann talaði um
Eyjólf Þorsteins eftir fimmganginn... að hann væri með hvíldarlaust taumhald... Ég hef nú prufað nokkra hesta hjá honum og eru þeir nú svona yfirleitt léttir á taumana og ég held að Ögri sé það líka ... Eitt sem mig langar að
velta upp er að hvort Jens hafi aldrei heyrt um
jafnt taumsamband.. Held nefnilega að Eyjó ríði töluvert í jöfnu taumsambandi sem er mjúkt en komi út fyrir svona
leikmenn eins og Jens sem "
hvíldarlaust taumhald"... En þú ferð til mestu reiðsnillinga og kennara bæði hér heima (t.d. Mettu, Eyjólfs, Þorra og Tona) og erlendis (t.d. Borba) þá er endatakmarkið að geta riðið hestinu í jöfnu léttu taumsambandi sem þýðir að það eigi ekki að sleppa taumnum fram (komi slaki á taumin í tíma og ótíma) til að umbunda ef maður er alltaf að sleppa taumnum fram missir maður sambandið við hestinn og hann stendur eftir í óvissu og það næsta sem þú þarft að gera er að reyna komast að honum aftur. Þá ertu komin í hringavitleysu og hesturinn veit aldrei hvar hann á að vera,
Ég fór til dæmis í reiðtíma um daginn til
Antons Páls og þar gerði hann ekki annað en að skamma mig fyrir að sleppa hestinum alltaf frá mér og lagði gríðarlega áherslu á jafnt taumsamband og hesturinn gangi inn á milli ábendinga og umbunin fyrir hestin sé í mjúku taumsambandi ekki ekki að sleppa taumnum alltaf fram og skilja hestinn efir í
lausu lofti.
Annað sem mér finnst að Jens mætti líka pæla í er að hestar eru mjög mismunandi og eiga mismunandi
auðvelt með að bera sig uppi. Það fer bara eftir byggingarlagi aðallega og ganglagi hversu hestar eiga auðvelt með þetta. Hestar sem eru framþyngri og eiga erfiðara með þetta og lenda meira á framhlutanum t.d. í niðurhægingum.
Aðalmálið er að
MÉR fynnst að Jens mætti fara að slaka á þessu með taumhaldið og fara að horfa á
heildarmyndina meira. Hvaða hestur gengur mjúkur í gegnum sig frá hvirfli til ilja? Hvaða hestur gengur á milli ábendinga gegnum mjúkur? Hvaða knapi er að ná því mesta út úr hestinum með réttum ábendingum? Hvaða hestur er að ganga upp í herðarnar? Hvaða hestur er niðri í herðum og leggst óþarflega mikið á framhlutan, til dæmis á hröðu tölti og niðurhægingum? Hvaða hestur er sjálfberandi? Hvaða knapar eru búnir að vinna heimavinnuna sína áður en þeir mæta?
Og Jens ég tel það kost að geta riðið hestinum sínum við taum í réttu formi (með langan háls, upp í herðum og eftirgjöf í fremsta hálslið), klökkur hestur sem flýr alltaf undan sambandi og vill helst ekki láta koma við sig er ekkert betri en stífur hestur
Bestu kveðjur Hrefna Mmmm